Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. maí 2023 17:30
Brynjar Ingi Erluson
Firmino í tárum á Anfield
Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Roberto Firmino spilaði sinn síðasta í treyju Liverpool á Anfield í gær en hann var kvaddur með stæl.

Firmino hefur eytt síðustu átta árum hjá Liverpool og farið í gegnum hæðir og lægðir með liðinu.

Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna á hæsta stigi með Liverpool og spilað 361 leik og gert 110 mörk.

Á dögunum var tilkynnt að hann væri á förum í sumar en samningur hans við félagið rennur út í lok júní. Hann fékk því tækifæri til að kveðja stuðningsmenn Liverpool á Anfield í gær er liðið mætti Aston Villa.

Hann kom af bekknum og gerði jöfnunarmarkið undir lok leiks. Ágætis leið til að kveðja stuðningsmennina og sungu þeir nafn hans hástöfum og féllu nokkur tár hjá Brasilíumanninum eins og sjá má hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner