Guðmundur Atli Steinþórsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í dag í öruggum 4-0 sigri HK gegn Selfossi.
Guðmundur var að vonum glaður í leikslok er fótbolti.net ræddi við hann.
Guðmundur var að vonum glaður í leikslok er fótbolti.net ræddi við hann.
Lestu um leikinn: HK 4 - 0 Selfoss
„Mér líður vel, þrjú stig, nú er það bara uppávið hjá okkur."
Guðmundur segir sigurinn síst of stórann.
„Heldur betur, hefði getað farið miklu stærra, ég sjálfur klúðraði svona þremur dauðafærum auk þess að skora þrjú. Við erum allavega sáttir við þrjú stigin."
Guðmundur hefði viljað að liðsfélagi sinn, Guðmundur Magnússon myndi skora í kvöld. Þess má geta að kærasta Guðmundar var viðstödd viðtalið.
„Ég hefði viljað að Gummi Magg hefði sett hann, honum vantar mark," sagði Guðmundur kátur í leikslok.
Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir






















