Aron Jóhannsson, fyrirliði Grindavíkur, átti stórleik gegn KV í Lengjudeildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: KV 1 - 3 Grindavík
Aron skoraði glæsilegt mark í fyrri hálfleiknum og jafnaði metin eftir að KV hafði tekið forystuna.
„Þetta var frábær liðssigur," sagði Aron. „Við vorum drullulélegir meirihlutann í fyrri hálfleik. Þeir voru beittir og við vorum á hælunum."
„Þetta var gott mark. Ég tel mig vera góðan skotmann en þetta skot er búið að fara 15 metra yfir síðustu þrjú árin. Það fór í skeytin í dag," sagði Aron.
Guðjón Pétur Lýðsson er kominn inn á miðsvæðið hjá Grindavík. Hvernig er að fá hann í liðið?
„Það vita allir sem horfa á íslenska boltann hvað Guðjón Pétur getur í fótbolta. Hann styrkir okkar lið, hann styrkir held ég flest lið á Íslandi."
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan en hann segist ekki vera búinn að ákveða það hvort hann verði áfram í Grindavík á næsta tímabili. Hann segir jafnframt að það verði ekki erfitt fyrir liðið að mótívera sig í síðustu fjóra leikina þrátt fyrir að liðið sé núna svo gott sem búið að tryggja sér áframhaldandi veru í deildinni.
Athugasemdir























