Al Hilal undirbýr stórt tilboð í Fernandes - Bayern vill Mitoma - Delap og Doak til Everton?
banner
   lau 24. maí 2025 23:30
Elvar Geir Magnússon
Rúnar og félagar áfram í deild þeirra bestu - Rosenborg niðurlægt
Rúnar Þór Sigurgeirsson.
Rúnar Þór Sigurgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson og félagar hans í hollenska liðinu Willem II náðu að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni þar í landi. Liðið fór í umspil um að spila í deildinni og vann þar FC Dordrecht í vítaspyrnukeppni.

Willem II var undir eftir fyrri leikinn en vann 3-2 í kvöld og einvígið endaði samtals 4-4. Rúnar byrjaði á bekknum en kom inn sem varamaður í framlengingunni.

Hann tók ekki víti í vítakeppninni sem Willem II vann 5-4.

Í Danmörku mættust Lyngby og Álaborg en bæði lið eru fallin úr úrvalsdeildinni. Sævar Atli Magnússon var í byrjunarliði Lyngby sem vann leikinn 3-1. Nóel Atli Arnórsson kom inn í hálfleik hjá Álaborg.

Í Noregi tapaði Rosenborg 4-0 gegn Bodö/Glimt. Ísak Snær Þorvaldsson kom inná á 83. mínútu í leiknum.


Athugasemdir
banner
banner