Framherjinn Luis Suarez gerði allt vitlaust í dag þegar Úrúgvæ vann 1-0 sigur gegn Ítalíu á HM 2014.
Suarez, sem er þekktur fyrir að gera ansi heimskulega hluti inni á vellinum af og til, hélt uppteknum hætti og beit varnarmanninn Giorgio Chiellini í vítateig Ítalíu.
Eins ótrúleg og fylgjandi staðhæfing hljómar, þá er þetta í þriðja skiptið sem Suarez bítur leikmann á ferlinum.
Í fyrsta skiptið var það í hollensku deildinni þegar Suarez spilaði með Ajax, en haustið 2010 beit hann Ottman Bakkal sem þá lék með PSV.
Suarez gerði svo allt vitlaust vorið 2013 þegar hann beit Branislav Ivanovic, leikmann Chelsea, og fékk hann 10 leikja bann.
Nú hefur svo Chiellini bæst í hópinn. Stutt brot af öllum bitum má sjá hér að neðan.

Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.