Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   þri 24. júní 2014 17:53
Hafliði Breiðfjörð
Godsamskipti
Mynd af Suarez bíta Chiellini og öxlinni á Ítalanum.
Mynd af Suarez bíta Chiellini og öxlinni á Ítalanum.
Mynd: Twitter
Ótrúlegt atvik átti sér stað í leik Úrúgvæ og Ítalíu rétt í þessu þegar Luis Suarez beit Giorgio Chiellini í öxlina.

Suarez hefur tvisvar fengið langa dóma fyrir að bíta andstæðing, fyrst með Ajax og svo með Liverpool en dómarinn sá atvikið ekki áðan.

Hér að neðan má sjá samantekt af Twitter um atvikið en samskiptavefurinn var á floti af umræðum um þetta.

Piers Morgan sjónvarpsmaður
Borðar Suarez ekki fyrir leiki?

Brad Friedel markvörður Tottenham
Suarez BÍTUR AFTUR???!!! Hvað er a honum!!!

Ég trúi því ekki ennþá sem ég sá frá Suarez... hann þarf að fá VERULEGT bann frá fótbolta. ÞRIÐJA skiptið núna!

Rikki G ‏sjónvarpsmaður
Nú þarf bara að banna hann fra fótbolta!! Er maðurinn geðbilaður?? Þetta gengur ekki! #reiður

Gunnleifur Gunnleifsson markvörður Breiðabliks
Held að Suarez þurfi aðstoð!! Hvað gengur á hjá þessum gæja???#fotbolti#hmruv

Damir Muminovic varnarmaður Breiðabliks
Jæjaa Suarez...20 leikja bann nuna.

Hallbera Gisladottir ‏landsliðskona
Hvað ætli sé að Suarez

Fjalar Þorgeirsson ‏markvörður Vals
Hver ætli verði gestur í Ísland í bitið í fyrramálið?

Hjörtur Hjartarson framherji ÍA
Ok, þið megið kaupa hann... #BannedForLife #Svangur

Egill Einarsson ‏Gilzenegger
Hlaut að koma að því!!!! Afhverju hólkaði ég ekki á að hann myndi bíta einhvern á HM. Það var hörku stuðull á það á Bet365!!!

Páll Gísli Jónsson markvörður ÍA
Úrúgvæinn smellir bara grímunni hans Hannibals á suarez þá verður ekkert vesen #mannætan
Slapp
banner