Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola ánægður með frumraun Ait-Nouri
Mynd: EPA
Rayan Ait-Nouri gekk til liðs við Man City frá Wolves í sumar.

Þessi 24 ára gamli bakvörður lék sinn fyrsta leik fyrir liðið í nótt þegar City vann stórsigur á Al Ain 6-0. Pep Guardiola var í skýjunum með frammistöðu Ait-Nouri.

„Vá, hann spilaði mjög vel því við urðum að verjast ífjögurra manna línu og svo í fimm manna línu. Þetta er fyrsti leikurinn hans en hann hefur líka spilað í úrvalsdeildinni í mörg ár," sagði Guardiola.

„Hann er góður að verjast og er svo klár á síðasta þriðjungnum líka. Ég var virkilega ánægður með frammistöðuna hans."
Athugasemdir
banner