
Framherjamál Arsenal, eigendamál Crystal Palace og framtíð Jadon Sancho er meðal þess sem finna má í mánudagsslúðrinu. BBC tók saman það helsta sem verið er að fjalla um.
Arsenal gæti dregið sig út úr 70 milljóna punda tilboði í framherjann Benjamin Sesko (22) hjá RB Leipzig vegna launakrafna slóvenska landsliðsmannsins. Viktor Gyökeres (27) hjá Sporting er varakostur. (Mirror)
John Textor, hluthafi í Crystal Palace, hefur gert samkomulag um að selja sinn hlut í enska félaginu til Woody Johnson, eiganda NFL-félagsins New York Jets. Textor á einnig hlut í Lyon og það hefur flækt málin varðandi leyfi fyrir Palace til að spila í Evrópukeppni. (BBC)
Bayern München hefur blandað sér í baráttuna um Jamie Gittens (20), sem Chelsea hefur einnig áhuga á. Þýsku meistararnir eru sagðir tilbúnir að bjóða Borussia Dortmund 55 milljónir punda fyrir kantmanninn. (Kicker)
Hvort Juventus reyni við Jadon Sancho (25), kantmann Manchester United, er háð því hvort ítalska félagið semji við Francisco Conceicao (22) frá Porto. Conceicao lék á láni hjá Juve á leiktíðinni. (Corriere dello Sport)
Chelsea hyggst ekki seja Nicolas Jackson (24) þrátt fyrir áhuga frá Sádi-Arabíu og Evrópu. (Sky Sports)
Liverpool hefur komist að samkomulagi um að selja varnarmanninn Jarell Quansah (22) til Bayer Leverkusen fyrir 35 milljónir punda. Félagið hefur sett endurkaupsákvæði í samninginn. (Fabrizio Romano)
Manchester United hefur áhuga á framherjanum Moise Kean (25), sem spilar með Fiorentina og Ítalíu. Hann er með 52 milljóna evra riftunarákvæði (44,5 milljónir punda) í samningi sínum sem gildir frá 1. til 15. júlí. (La Gazzetta dello Sport)
Wrexham og Stockport County hafa áhuga á Tom Lawrence (31), fyrrum sóknarmanni Wales og Rangers. (Sky Sports)
Danski varnarmaðurinn Andreas Christensen (29) mun væntanlega yfirgefa Barcelona í sumar. (Fabrizio Romano)
Athugasemdir