Bellingham bræðurnir, Jude og Jobe, eru að lifa drauminn og spila fótbolta í hæsta gæðaflokki.
Yngri bróðirinn, Jobe, fetaði í fótspor eldri bróður síns og gekk til liðs við Dortmund í sumar. Jobe gerði sér lítið fyrir og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Dortmund á dögunum á HM félagsliða sem fram fer í Bandaríkjunum.

Jude skoraði í 3-1 sigri Real Madrid gegn Pachuca í gær.
„Allir sögðu við mig í gær að hann væri betri en ég. Ég varð að gera eitthvað, það er 1-1 á milli okkar núna, við sjáum til hvernig þetta endar á mótinu," sagði Jude Bellingham eftir leikinn.
Athugasemdir