Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 10:26
Elvar Geir Magnússon
Fótbolti.net bikarinn fer í gang - Liðin sem léku til úrslita 2023 mætast
Selfoss og KFA mættust í úrslitum í fyrra.
Selfoss og KFA mættust í úrslitum í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net bikarinn, bikarkeppni neðri deilda, fer í gang á morgun þriðjudag og verður fyrsti leikurinn flautaður á klukkan 18:00 á Sauðárkróki. 32-liða úrslitum keppninnar lýkur síðan á miðvikudagskvöld.

Þetta er þriðja árið sem keppnin er haldin en Víðir vann fyrstu keppnina og varð síðan Selfoss meistari á síðasta ári eftir að hafa unnið KFA 3-1 á Laugardalsvelli.

KFA fær Augnablik í heimsókn á morgun, en Selfoss verður eðlilega ekki með þar sem liðið fór upp í Lengjudeildina á síðasta ári.

KFG og Víðir, sem mættust einmitt í úrslitum árið 2023, mætast á Samsung-vellinum annað kvöld.

Alls eru þrír 2. deildarslagir í 32-liða úrslitunum en Grótta og Dalvík/Reynir eigast við auk þess sem Haukar mætar Ægismönnum.

þriðjudagur 24. júní
18:00 Tindastóll-Árborg (Sauðárkróksvöllur)
19:15 Ýmir-KH (Kórinn)
19:15 KFA-Augnablik (SÚN-völlurinn)
19:15 Reynir S.-Hafnir (Brons völlurinn)
19:15 Hamar-Kári (Grýluvöllur)

miðvikudagur 25. júní
16:45 Höttur/Huginn-KÁ (Fellavöllur)
18:00 KF-Álftanes (Ólafsfjarðarvöllur)
18:00 Grótta-Dalvík/Reynir (Vivaldivöllurinn)
18:00 KFS-Vængir Júpiters (Týsvöllur)
19:15 ÍH-Þróttur V. (Skessan)
19:15 Magni-Kormákur/Hvöt (Grenivíkurvöllur)
19:15 Sindri-Árbær (Jökulfellsvöllurinn)
19:15 Haukar-Ægir (BIRTU völlurinn)
19:15 KV-Hvíti riddarinn (KR-völlur)
19:15 Víkingur Ó.-Elliði (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 KFG-Víðir (Samsungvöllurinn)



Til félaga sem taka þátt í keppninni:
Ef félög eru til í að hjálpa okkur við að auka umgjörð um keppnina þá er allt efni velkomið. Ef félögin eru með myndir, viðtöl, upplýsingar, samfélagsmiðlaefni, beinar netútsendingar sem hægt er að kynna eða eitthvað fleira þá er tölvupósturinn opinn: [email protected] - Einnig er hægt að senda okkur ábendingar eða hugmyndir.
Athugasemdir
banner