Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 26. mars 2023 23:37
Brynjar Ingi Erluson
Ísak Óli spilaði í sigri Esbjerg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Ísak Óli Ólafsson og hans menn í Esbjerg eru í 3. sæti dönsku C-deildarinnar eftir að liðið vann Frem, 2-0, í dag.

Ísak var í fimmtán sinn í byrjunarliði Esbjerg á tímabilinu er liðið mætti Frem í dag.

Esbjerg er í baráttu um að komast upp í B-deildina og var því mikilvægt að ná í sigur í dag.

Það hafðist og átti Ísak afar góðan leik í vörninni en Esbjerg er nú í 3. sæti með 42 stig eftir 20 leiki og aðeins fjórum stigum frá toppliði Aarhus Fremad.
Athugasemdir
banner
banner
banner