Arsenal og Bayern berjast um Nico - Isak ætlar að ræða við Newcastle - Sane aftur til Englands?
banner
   mið 26. júní 2024 14:04
Elvar Geir Magnússon
FH án Björns Daníels gegn Blikum - Hólmar í banni á Skaganum
Björn Daníel tekur út leikbann.
Björn Daníel tekur út leikbann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn reynslumikli Björn Daníel Sverrisson tekur út leikbann og verður ekki með FH gegn Breiðabliki á föstudagskvöld. Hann hefur safnað fjórum áminningum.

Aganefnd KSÍ fundaði í gær og voru fleiri leikmenn úr Bestu deildinni úrskurðaðir í bann vegna uppsafnaðra áminninga.

Varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson tekur út bann þegar Valur heimsækir ÍA á föstudag.

Alex Freyr Elísson og Kyle McLagan verða báðir í banni þegar Fram heimsækir Vestra á morgun. Tveir leikmenn Vestra taka út bann í leiknum; Ibrahima Balde og Vladimir Tufegdzic.

Svona er tólfta umferð Bestu deildarinnar:

fimmtudagur 27. júní
18:00 Vestri-Fram (Kerecisvöllurinn)
19:15 Stjarnan-Víkingur R. (Samsungvöllurinn)
19:15 KR-Fylkir (Meistaravellir)

föstudagur 28. júní
18:00 HK-KA (Kórinn)
19:15 ÍA-Valur (ELKEM völlurinn)
19:15 FH-Breiðablik (Kaplakrikavöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner