„Mér fannst það öruggur sigur. Við náðum að skora á þá og þá sá maður gleðina og sjálfstraustið rísa í mínum mönnum og þeir fylgdu þessu glæsilega vel eftir og gáfu lítil færi á sér og skoruðu 4 mörk og ég er bara mjög sáttur við leikinn" sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir góðan sigur á Fylki í kvöld.
Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 4 Fjölnir
„Þegar menn eru að sýna sig og sanna og spila góðan fótboltaleik og berjast fyrir sínu og sýna góðan karakter þá vinnuru yfirleitt fótboltlaleik. Við gerðum það vel og refsuðum Fylkismönnum vel og héldum góðu skipulagi á okkar leik nánast allan leikinn.
Gáfum lítil færi á okkur og það er eitthvað sem þjálfari kýs og ég þakka strákunum fyrir frábært framlag í dag.
Maður vill hafa menn eins og Chopart, að þeir hlaupi og haldi skipulagi og hann gerði það og refsaði þeim alveg herfilega í öðru markinu. Hann gaf öllu í liðinu byr undir báða vængi og það nýttu sér það allir og voru ótrúlegustu menn að hlaupa og berjast þarna inn á sem ég er þakklátur fyrir "
Nánar er rætt við Gústa í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir























