Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
banner
   sun 28. september 2014 17:28
Elvar Geir Magnússon
Bjarni Guðjóns ósáttur með að fá ekki víti: Með ólíkindum
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Framarar eru í fallhættu fyrir lokaumferð Pepsi-deildarinnar en liðið steinlá gegn Stjörnunni í dag 4-0.

„Ef þú ætlar að gefa alltaf þrjú mörk þá verður þetta brekka. Við ætlum að vera eitthvað lengur saman en þetta tímabil og við verðum að gjöra svo vel og átta okkur á hvað það er að valda því að við byrjum leikina svona,“ sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari Fram.

Í stöðunni 3-0 var varamarkvörður Stjörnunnar kominn í markið en hann var stálheppinn að fá ekki rautt spjald og víti á sig.

„Varamarkmaðurinn kominn í markið, útileikmaður hefði farið í markið, staðan úr 3-0 í 3-1 og hálftími eftir af leiknum. Ég vil taka undir þessi góðu orð sem voru látin falla í vikunni. Það þarf að skoða þetta. Þetta gerist líka í síðustu umferð hjá okkur, við eigum að fá víti en þetta er erfiður völlur að koma og dæma."

„Það féllu í vikunni orðin hjá stelpunum að það kom mest á óvart hvað dómgæslan var léleg. Svo segir Þóroddur að þetta var ekki leikbrot. Þetta er með ólíkindum svo ekki sé fastar að orði kveðið."

Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner