Haydn Dodge umboðsmaður Joe Gomez varnarmanns Liverpool hefur staðfest áhuga Newcastle á leikmanninum. Newcastle hefur fengið á sig fæst mörk í deildinni eða 19 talsins.
Eddie Howe hefur spilað Sven Botman og Fabian Schar í miðvarðarstöðunum í flestum leikjum sem þýðir að Jamal Lascelles hefur þurft að sitja mikið á varamannabekknum.
Samningur Lascelles rennur út í sumar og má búast við því að hann yfirgefi félagið en þá mun Newcastle þurfa að bæta við varnarmanni.
„Það er vitað að Newcastle hefur dáðst að Joe Gomez í langan tíma þar sem félagið ætlar að styrkja miðvarðarstöðuna þar sem nokkrir leikmenn hjá þeim renna út af samningi í sumar," sagði Dodge.
Athugasemdir