Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
banner
   lau 30. ágúst 2014 19:10
Mist Rúnarsdóttir
Kristrún Kristjáns: Frábært fyrir bæði lið
Kvenaboltinn
Kristrún skoraði eitt og lagði upp tvö
Kristrún skoraði eitt og lagði upp tvö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vinstri bakvörðurinn Kristrún Kristjánsdóttir átti draumaleik í bikarúrslitunum. Hún lagði upp tvö mörk og skoraði eitt í 4-0 sigri Stjörnunnar. Fótbolti.net tók Kristrúnu tali eftir leik en hún var skiljanlega í skýjunum með titilinn.

„Það var frábært að koma í þennan leik. Við vorum með góðan stuðning og það voru margir á vellinum. Þetta er bara mjög góð tilfinning,“ sagði Kristrún um leikinn.

„Það var bara frábært. Það er frábært að fá stuðninginn og það var líka góð stemmning frá Selfossi þannig að þetta er bara frábært fyrir bæði lið.“

„Þetta var mjög gaman. Þetta er náttúrulega einn eftirsóttasti leikurinn þannig að þetta var bara frábært. Skemmtilegt, erfiður leikur en við náðum að klára hann.“


Sem fyrr segir átti Kristrún frábæran leik. Lagði upp tvö fyrstu mörk Stjörnunnar og kórónaði svo sína frammistöðu með því að skora fjórða mark liðsins. Aðspurð segist hún ekki geta verið annað en sátt.

„Já. Verður maður ekki að vera sáttur? Jú, ég er mjög sátt. Þetta var mjög skemmtilegt og bara vel kláruð færi hjá Hörpu þannig að ég er bara mjög sátt.“
Kristrún leikur í stöðu vinstri bakvarðar og var því svolítið stressuð þegar hún komst í dauðafæri undir lok leiks.

„Ég var pínu stressuð að klára þetta ekki. Maður er ekki vanur að vera svona framarlega en það er eins gott að ég sett‘ann.“

Bikarmeistararnir ætla að fagna sigrinum í kvöld og setja stefnuna á Bláa Lónið.

„Það var eitthvað plan. Ég held að við séum að fara upp í Stjörnuheimili núna og svo var eitthvað plan um að fara í Bláa Lónið og út að borða í kvöld þannig að það verður bara gott að fagna,“ sagði bikarmeistarinn að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner