Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
   lau 20. ágúst 2011 18:48
Mist Rúnarsdóttir
Lilja Dögg: Þetta var mjög sárt
Kvenaboltinn
„Þetta var mjög sárt, mjög sárt,“ sagði Lilja Dögg Valþórsdóttir, fyrirliði KR, eftir 2-0 tapið gegn Val í úrslitum Valitor-bikarsins.

Lestu um leikinn: KR 0 -  2 Valur

„Það var kannski einhver taugatitringur þarna í byrjun og því miður fáum við þetta mark á okkur snemma. En mér fannst við ná að vinna okkur fyllilega vel inn í þennan leik í fyrri hálfleiknum. Eins og ég er búin að segja hérna í öllum viðtölunum þá fannst mér eiginlega bara svekkjandi að fara inn í hálfleik því mér fannst við vera komnar á það gott skrið hérna í lok fyrri hálfleiks að mér fannst að við værum alveg að fara að setja á þær.“

„Það er vissulega bara svekkjandi að ná ekki að nýta þau færi sem við fengum. Við fengum nokkur dauðafæri. Svo náum við bara ekki sama dampi í seinni hálfleiknum, því miður.“


KR-liðið átti ágætis spretti undir lok fyrri hálfleiks og virtist allt eins líklegt til að jafna. Þegar komið var í síðari hálfleikinn náði KR-liðið þó ekki að fylgja frammistöðunni eftir og Lilja Dögg segist ekki vita af hverju það er.

„Ég hef ekki skýringu á því. Ég veit ekki hvað það er. Það var rætt um það inni í klefa að byrja seinni hálfleikinn eins og við enduðum þann fyrri en það fór ekki þannig. Því miður.“
Slapp
banner
banner