,,Fyrirfram var þetta verkefni erfitt við vissum það en við vissum engu að síður að við áttum möguleika," sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis eftir 1-1 jafntefli gegn ÍA í dag en Fjölnir var manni færri mikinn hluta leiksins eftir að Geir Kristinsson fékk rauða spjaldið fyrir að verja með hendi á marklínu.
Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 1 ÍA
,,Menn voru mjög áþjáðir í að sýna sig og sanna í dag og ná góðum úrslitum. Brekkan jókst enn frekar þegar það voru komnar 25 mínútur á klukkuna. Þá missum við mann útaf og þeir fá víti og komast 1-0 yfir. Þá varð við ramman reip að draga."
,,Einhverjir segja að boltinn hafi verði kominn inn fyrir en væntanlega var þetta víti, mér fannst hann samt ekki slengja hendi í boltann heldur lagðist hann með bringuna í hann og svo rúllaði hann í hendina á honum eins og ég sá þetta. Fyrir mitt leiti ekki rautt spjald. Dómarinn útskýrði þetta hinsvegar þannig að hann hafi teygt sig í boltann. Ef hann sér það þannig þá getur hann ekki annað en gefið honum rautt."
,,Þetta var á köflum grimmur leikur en svona er fótboltinn bara. Þetta er barátta og við vorum tilbúnir í baráttuna í dag. Ég vil bara hrósa leikmönnunumn fyrir góðan seinni hálfleik. Við töluðum vel saman í hálfleik og í þessari stöðu, manni færri og marki undir á móti Skaganum vorum við áfjáðir í að koma sterkir inn í seinni hálfleikinn. Við allavega vinnum hann 1-0 og getum verði ánægðir með það."





















