Chelsea blandar sér í baráttu við Arsenal um Isak - Real Madrid hyggst lána eftirsóttan Guler - Mourinho ekki að reyna við Ronaldo
banner
   þri 11. júlí 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
Hólmbert spáir í 11. umferð í Inkasso-deildinni
Hólmbert Aron Friðjónsson.
Hólmbert Aron Friðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Már skorar tvö samkvæmt spá Hólmberts.
Arnar Már skorar tvö samkvæmt spá Hólmberts.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld lýkur fyrri umferðinni í Inkasso-deildinni en þá er 11. umferðin á dagskrá.

Hólmbert Aron Friðjónsson, framherji Stjörnunnar, settist yfir leikina og kom með sína spá fyrir kvöldið.

ÍR 0 - 2 Fylkir (19:15 í kvöld)
Arnar Már verður of stórbiti fyrir ÍR liðið. Tvenna hjá honum & Fylkir back on track!

Grótta 1 - 2 Leiknir R. (19:15 í kvöld)
Leiknir kemst á sigurbraut eftir 4 leiki án sigurs í deildinni. Elvar Páll og Kolbeinn með mörk Leiknis, flautmark hjá Kolla.

Þór 4 - 0 Leiknir F. (19:15 í kvöld)
Þórsarar eru komnir í gang eftir smá bras í byrjun móts & klára þennan leik.

Keflavík 1 - 3 HK (19:15 í kvöld)
Þetta verður skemmtilegasti leikurinn. HK vinnur, Bjarni Gunnars er kominn í gang þá er erfitt að eiga við hann tvö í seinasta leik og þrenna núna, Leifur Andri 2 assist. Jeppe skorar fyrir Keflavík.

Haukar 1 - 1 Selfoss (19:15 í kvöld)
Stál í stál - Bjöggi skorar fyrir Hauka en Guðjón Orri mun verða maður leiksins, heldur sínum mönnum á floti.

Þróttur R. 2 - 1 Fram (19:15 í kvöld)
Baráttan um Laugardalinn! Ég spái góðum leik en held að Þróttur klári þetta og nýji stjórinn hjá Fram þarf að bíða aðeins lengur eftir sínum fyrstu stigum!

Sjá einnig:
Sigurður Egill Lárusson (5 réttir)
Albert Hafsteinsson (3 réttir)
Arnþór Ari Atlason (3 réttir)
Ásgeir Þór Ingólfsson (3 réttir)
Bergsveinn Ólafsson (3 réttir)
Guðjón Pétur Lýðsson (3 réttir)
Jóhann Laxdal (3 réttir)
Davíð Snorri Jónasson (2 réttir)
Hallgrímur Mar Steingrímsson (1 réttur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner