,,Mér fannst leikurinn bera keim af því að það er mjög heitt úti og það eru erfiðar aðstæður að spila fyrir íslenska fótboltamenn. Leikurinn var opinn og ég held að hann hafi verið skemmtilegur fyrir áhorfendur," sagði Jón Páll Pálmason þjálfari Hattar eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Aftureldingu í annarri deildinni í dag.
Sól og blíða var í Mosfellsbæ í dag en Jón Páll segir að Hattarmenn séu vanir þessu af Egilsstöðum.
,,Hitastigið á Egilsstöðum hefur verið í kringum 30 gráðurnar í mest allt sumar. Þið sem búið fyrir sunnan og allt mest og best hér áttið ykkur ekki á því að það er klukkutíma flug á Egilsstaði þar sem veðurparadís Íslands er. Maður finnur ekkert annað en grilllykt í lofti á Egilsstöðum."
Jón Páll hrósaði dómurum leiksins sérstaklega fyrir frammistöðu sína í dag.
,,Mér fannst dómararnir standa sig mjög vel í þessum leik. Ég var varaður við því af miklum spekingum hér og þar um bæinn þegar ég tók við starfinu að dómgæslan væri æði skrautleg. Ég verð nú bara að hrósa íslenskum dómurum sem hafa dæmt þessa leiki hjá okkur."
,,Við erum búnir að spila tólf leiki og þeir hafa staðið sig gríðarlega vel. Það er búin að vera mikil umræða um dómgæslu í Íslandsmótinu og á HM. Mér finnst sú umræða vera frekar á lágu plani hjá þjálfurum. Mér finnst þjálfarar á Íslandi tala mikið niður til dómara og ef við ætlum að fá fleiri góða dómara þá þurfum við þjálfarar að haga sér eins og menn í viðtölum og sérstaklega á línunni."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























