Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
   fim 22. júlí 2010 23:34
Hafliði Breiðfjörð
Kristján Ari: Ekki eins og markaskorarar sem hugsa um sjálfa sig
Kristján Ari Halldórsson.
Kristján Ari Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var mjög gaman, kominn tími til að taka loksins þrjú stig eftir ég veit ekki hvað mörg jafntefli í röð. Þetta var æðislegt og líka að setja hann. Ég er búinn að setja hann í stangirnar alveg hvað eftir annað, svo það var frábært að sjá hann inni í fyrri hálfleik og svo setti ég hann aftur og náði að setja nokkrar sendingar þarna. Þetta var bara toppdagur fyrir mig," sagði Kristján Ari Halldórsson sem var frábær í 5-1 sigri ÍR á Njarðvík í kvöld.

Kristján Ari skoraði tvö mörk í leiknum, lagði upp önnur tvö og var stöðugt að gefa eitraðar sendingar innfyrir vörn Njarðvíkur.

,,Ég er alltaf mjög mikið að horfa í kringum mig. Ég er ekki eins og allir þessir markaskorarar sem hugsa bara um sjálfan sig. Það er gaman að geta lagt upp á hina líka.

,,Það er líka frábært að geta náð fimm mörkum. Við erum ekki með neitt spes markatölu og urðum að skora mikið. Það var gott að þetta var að detta fyrir okkur í dag og við náðum að fara í plús í markatölu."


Nánar er rætt við Kristján Ara í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner