Gianni Infantino, forseti FIFA, talaði um breytingar á leikreglum og VAR myndbandstæknina í gær.
Infantino var spurður út í vandræði ensku úrvalsdeildarinnar í sambandi við VAR og sagði vandamálið ekki liggja hjá tækninni.
„Það er aðeins ein deild í heiminum þar sem VAR er stórt vandamál," sagði Infantino.
Hann bætti því síðan við að hann væri opinn fyrir því að endurskoða rangstöðuregluna og reglur varðandi hvenær á að dæma hendi.
Infantino hefur verið að skoða mögulegar reglubreytingar í samstarfi við IFAB, sem sér um varðveitingu og breytingar á knattspyrnulögum.
Athugasemdir