Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
   fim 18. september 2025 12:17
Elvar Geir Magnússon
Mun gæðaleysi markvarðar Þróttar kosta liðið?
Lengjudeildin
Þórhallur Ísak Guðmundsson.
Þórhallur Ísak Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhallur Ísak Guðmundsson, markvörður Þróttar, átti mjög erfiðan dag í Kórnum í gær þegar HK vann 4-3 sigur í ótrúlegum leik. Þetta var fyrri undanúrslitaleikur liðanna í umspili Lengjudeildarinnar.

Þórhallur hefur gert nokkuð af dýrkeyptum mistökum í sumar og er talinn veikur hlekkur í liðinu. Í leiknum í gær leit hann illa út í öllum mörkum HK og hægt er að skrá tvö þeirra algjörlega á hann.

Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni segir að Þróttur hafi í sumarglugganum reynt að fá inn annan markvörð, varamarkvörð ÍBV.

„Það var ekki að ástæðulausu að Þróttur bauð stóru seðlana í Hjörvar Daða markmann frá ÍBV í lok gluggans. Gæðaleysi Þórhalls Ísaks skinu í gegn í kvöld í Kórnum," skrifaði Kristján Óli.

Þórhallur fær tækifæri til að svara þeirri gagnrýni sem hann hefur fengið í seinni leiknum gegn HK, sem verður í Laugardalnum á sunnudag.

Lestu um leikinn: HK 4 -  3 Þróttur R.


Athugasemdir
banner