Enski sóknartengiliðurinn Tyrique George er búinn í læknisskoðun hjá Everton en hann er að koma til félagsins á láni frá Chelsea út tímabilið.
George er 19 ára gamall og uppalinn hjá Chelsea en hann hafði óskað eftir því að fara annað í leit að fleiri mínútum.
Everton náði samkomulagi við Chelsea um að fá leikmanninn á láni út tímabilið. Everton mun fá möguleika á því að kaupa George á meðan lánsdvölinni stendur, en verðmiðinn er ekki vitaður í augnablikinu.
Enskir miðlar halda því fram að það muni allt velta á því hversu marga leiki George mun spila fyrir Everton.
George var rétt í þessu að klára læknisskoðun hjá Everton og má búast við tilkynningu frá félaginu á næstu klukkutímum.
Athugasemdir




