PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
banner
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
föstudagur 20. febrúar
Championship
Blackburn - Preston NE - 20:00
Division 1 - Women
PSG W - Lens W - 20:00
Bundesligan
Mainz 0 - 0 Hamburger
Frauen
Union Berlin W 2 - 1 Koln W
Vináttuleikur
Italy U-17 1 - 2 France U-17
Estonia U-17 0 - 2 Sweden U-17
Serie A
Sassuolo 0 - 0 Verona
La Liga
Athletic - Elche - 20:00
fös 20.feb 2026 18:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

UTAN VALLAR: Tekjur KSÍ námu 2,3 milljörðum króna á síðasta ári

KSÍ hefur birt ársreikninginn sinn fyrir árið 2025 í aðdraganda 80. ársþingsins sem fer fram á Egilstöðum þann 28. febrúar næstkomandi. Á næstu dögum verða birtar nokkrar greinar þar sem rýnt verður í tölurnar.

Greinin var einnig birt á utanvallar.is

KSÍ velti 2.349 milljónum króna á síðasta ári en áætlanir KSÍ fyrir árið 2025 gerðu ráð fyrir 2.070 milljónum króna í rekstrartekjur. Árið áður, 2024, voru rekstrartekjur KSÍ 2.023 milljónir króna og því jukust rekstrartekjur um 326 milljónir á milli ára, tæplega 16,1% aukning. Stærsti hluta rekstrartekna KSÍ koma frá styrkjum og framlögum eða tæplega 63,9%. Þar á eftir er sjónvarpsréttur næststærsti tekjuliðurinn en hlutfall hans af rekstrartekjum KSÍ er 18,7%.

Tekjuliðurinn Styrkir og framlög er sundurliðaður í skýringum ársreikningsins og þar má sjá að stærsti hluti þeirra tekna koma frá UEFA, rúmlega 58%. Þar á eftir eru framlög frá FIFA 22% af þessum tekjulið. Heilt yfir þá er 37% af rekstrartekjum KSÍ tilkomnar vegna framlags frá UEFA og 14% af rekstrartekjunum eru tilkomnar vegna framlags frá FIFA.

Í greinargerð sem KSÍ birti með ársreikningnum kemur fram að framlagið frá UEFA var 27% hærra en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna þess að A-landslið kvenna komst á EM kvenna. 

Þess ber að nefna að ýmis framlög frá UEFA og FIFA eru áætluð í ákveðin verkefni, og því ekki um frjáls framlög sem KSÍ getur ráðstafað að eigin vild. Í greinargerð ársreikningsins er meðal annars tekið fram að KSÍ fékk 62,6 milljón króna styrk frá FIFA sem var einungis ætlaður til notkunar á vísinda- og þróunarsviði KSÍ (e. Technical Development Scheme)

Undir tekjuliðnum Styrkir og framlög má einnig finna undirlið sem heitir Ýmsir styrkir, en samkvæmt greinargerðinni eru meðal annars samningar við innlenda samstarfsaðila og PUMA. Tekjurnar af þessum undirlið námu 195 milljónum króna á síðasta ári.

Tekjur KSÍ af landsleikjum lækkuðu um tæplega 5,2 milljónir króna á milli ára og námu 149 milljónum króna árið 2025. Samkvæmt greinargerðinni eru þessar tekjur tilkomnar vegna miðasölu af heimaleikjum landsliða Íslands (A karla, A kvenna og U21 karla) og tekjum vegna landsleikja erlendis. Í greinargerðinni segir að miðasala á A landsleiki karla jukust á milli ára en að tekjur vegna miðasölu á A landslið kvenna voru lægri en áætlað var sökum þess að þær þurftu að spila þrjá leiki á heimavelli Þróttar þegar framkvæmdir stóðu yfir á Laugardalsvelli.

Tekjur KSÍ vegna sjónvarpsrétts voru 438 milljónir króna á síðasta ári en þessar tekjur lækkuðu um tæplega 10,9 milljónir króna á milli ára. Þessi tekjuliður er 18,7% af rekstrartekjum KSÍ. Knattspyrnusambandið hefur framselt þennan sjónvarpsrétt til UEFA þar sem hann er seldur sem hluti af stærri pakka (UEFA Centralization of Rights). Núverandi samningur við UEFA gildir frá júlí 2022 til júní 2028 og fær KSÍ 17 milljónir evra, ríflega 2.467 milljónir evra á núverandi gengi, fyrir tímabilið. Í greinargerðinni segir að bróðurpartur sjónvarpstekna KSÍ megi rekja til A landsliðs karla, tæplega 418 milljónir af þeim 438 milljónum króna sem KSÍ fékk á síðasta ári.

Aðrar rekstrartekjur KSÍ voru 164 milljónir króna á síðasta ári en þessi tekjuliður jókst um 42 milljónir króna á milli ára, sem er aukning upp á 34,7%. Árið 2021 voru þessar tekjur 69 milljónir króna og hefur þessi tekjuliður því vaxið um 137,2% frá árinu 2021. Á síðasta ári voru aðrar rekstrartekjur 7,0% af rekstrartekjum KSÍ.

Rekstrartekjur Laugardalsvallar voru 96 milljónir króna á síðasta ári og hækkuðu um tæplega 15,6 milljónir króna á milli ára en það er aukning upp á 19,3%. Í greinargerðinni segir að þessar tekjur samanstanda af rekstrarframlagi frá Reykjavíkurborg, vallarleigu, tekjum vegna veitingasölu og öðrum viðburðum. Rekstrartekjur Laugardalsvallar voru hærri en áætlað var, aðallega vegna leikja Breiðabliks í Sambandsdeildinni.


Athugasemdir
banner