Óttar Magnús Karlsson var hetja Renate í 1-0 sigrinum á Alcione Milano í C-deildinni á Ítalíu í kvöld.
Víkingurinn hefur verið í miklu stuði síðustu vikur en þetta var fimmta mark hans í síðustu tíu leikjum.
Hann skoraði sigurmarkið á 57. mínútu í kvöld en markið kom Renate upp í 5. sæti A-riðils C-deildarinnar.
Renate hefur ekki tapað deildarleik síðan í nóvember og stefnir hraðbyri í umspil um sæti í B-deildina.
Óttar, sem er 28 ára gamall, hefur skorað 7 mörk í deild- og bikar á tímabilinu og gefið eina stoðsendingu.
Athugasemdir




