Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 11:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Njarðvík ekki eina félagið sem hefur áhuga á Bjarti Bjarma
Lykilmaður hjá Aftureldingu
Lykilmaður hjá Aftureldingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net greindi frá því á laugardag að Njarðvík hefði lagt fram tilboð í Bjart Bjarma Barkarson, miðjumann Aftureldingar. Njarðvíkingar eru í leit að miðjumanni eftir að fyrirliði þeirra, Tómas Bjarki Jónsson, sleit krossband.

Því tilboði var hafnað. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru fleiri félög sem hafa verið með augastað á Bjarti Bjarma. FH sýndi áhuga nýlega og bæði ÍA og Þór sýndu áhuga í vetur.

Bjartur Bjarmi er fæddur árið 2002 og er alinn upp á Snæfellsnesi, lék með Snæfelli, Víkingi Ólafsvík og ÍA í yngri flokkunum. Hann gekk í raðir Aftureldingar fyrir tímabilið 2023 frá Víkingi Ólafsvík.

Hann er öflugur leikmaður sem hefur spilað frábærlega með Aftureldingu síðustu ár. Hann spilaði 26 leiki á síðasta tímabili og byrjaði þá alla. Fyrir tímabilið í fyrra framlengdi Bjartur samning sinn við Aftureldingu út tímabilið 2027. Hann var valinn besti maður liðsins og fótboltamaður Aftureldingar árið 2024.
Athugasemdir
banner
banner