Breel Embolo er lykilmaður í svissneska landsliðinu en hann þarf að bíða eftir að ganga til liðs við liðsfélaga sína í undirbúningi fyrir HM eftir að hann fékk ekki samþykkt landvistarleyfi.
Sviss spilar fyrstu tvo leiki riðlakeppninnar í Bandaríkjunum og er allur landsliðshópurinn mættur til landsins, að undanskildum Embolo.
Embolo fékk sjálfkrafa inngöngu inn í Bandaríkin eins og allir liðsfélagar hans, en rafræn umsókn hans var svo tekin til hliðar til nánari skoðunar vegna dómsmáls frá 2018. Þar fékk Embolo skilorðsbundna sekt fyrir að hafa í hótunum við mann í Basel.
Embolo á 24 mörk í 86 landsleikjum fyrir Sviss en hann hefur verið algjör lykilmaður að undanförnu, með 9 mörk í síðustu 13 landsleikjum.
Embolo er 29 ára gamall og leikur fyrir Rennes í Frakklandi, eftir að hafa áður verið hjá AS Monaco, Schalke, Borussia Mönchengladbach og Basel á ferlinum.
„Umsókn Breel Embolo var upprunalega samþykkt en var svo flögguð til nánari skoðunar," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Sviss. „Við erum í samskiptum við viðeigandi yfirvöld og búumst við að hann gangi til liðs við landsliðshópinn í kvöld eða á morgun."
Embolo er fæddur í Kamerún en hefur verið lykilmaður í landsliði Sviss lengi. Hann spilaði ellefu leiki fyrir yngri landsliðin áður en hann tók stökkið upp í A-landsliðið. Hann hefur tekið þátt í tveimur heimsmeistaramótum og þremur Evrópumótum á ferlinum, þar sem hann skoraði meðal annars í sigri gegn Kamerún á HM 2022 sem kom honum í sögubækurnar fyrir að vera annar leikmaðurinn í sögu keppninnar til að skora gegn landinu sem hann fæddist í.
Sviss er í riðli með Katar, Bosníu og Kanada og hefur þjóðin komist upp úr riðlakeppni HM síðustu þrjár keppnir í röð.
22.05.2026 06:00
Xhaka fer á sitt fjórða heimsmeistaramót í röð
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!





