„Ég er svo stoltur af liðinu, þær gáfu allt í þetta, við lentum í meiðslum en ekkert breyttist, við börðumst og börðumst," sagði Perry Mclachlan annar þjálfara Þór/KA eftir magnaðann 2-1 sigur á Val í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 1 Valur
Andrea Mist Pálsdóttir þurfti að fara af velli eftir samstuð við Örnu Sif snemma leiks en hún fékk gat á hausinn. Perry hefur ekki miklar áhyggjur af þessum meiðslum.
„Þessi leikur tók á, þær eru mjög þreyttar eftir alla vinnuna sem þær settu í þetta," sagði Perry í framhaldinu um ástand hópsins eftir leikinn.
„Við vildum gefa allt í þetta í 90 mínútur og berjast. Við vissum að við yrðum ekki mikið með boltann og vissum að við þyrftum að berjast og það gerðum við," sagði Perry að lokum.






















