
„Lánleysið okkar er algjört, við erum í þannig stöðu að við náum ekki að koma boltanum í netið," segir Bjarni Jóhannson þjálfari Selfoss eftir 4-1 tap gegn HK fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: HK 4 - 1 Selfoss
„Mér fannst við alveg getað verið 2-0 yfir eftir tíu mínútur. Svo fáum við á okkur mark og áttum þá á brattann að sækja."
„Við kláruðum þennan leik ágætlega en við erum lánlausir upp við mark andstæðinganna."
Selfoss er á botni deildarinnar með 3 stig. Liðið hefur tapað 5 leikjum í röð.
„Við þurfum að laga varnarleikinn, við fáum á okkur mikið af mörkum. Svo skorum við of fá, þetta er ærið verkefni, við vissum að það yrði á brattann að sækja í sumar."
„Við komum upp í fyrra og okkur var spáð mjög neðarlega. Nú er það bara að halda áfram og vonandi fáum við okkar sterku menn úr meiðslum fljótlega."
Viðtalið við Bjarna er í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir