Sádí arabíska félagið Al-Hilal vill fá Victor Osimhen frá Napoli en framherjinn hafnaði risatilboði frá félaginu.
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Napoli hafi hafnað um 65 milljón evra tilboði í leikmanninn en hann er með 75 milljón evra söluákvæði í samningnum og Napoli samþykkir ekkert annað en það.
Þá er einnig greint frá því að Osimhen hafi hafnað risatilboði sem hljóðar upp á 26 milljón evrur í árslaun.
Osimhen var á láni hjá Galatasaray á síðustu leiktíð og tyrkneska félagið vonast til að festa kaup á honum í sumar.
Athugasemdir