Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Flick var ekki sanngjarn"
Lamine Yamal og Pablo Torre
Lamine Yamal og Pablo Torre
Mynd: EPA
Pablo Torre, leikmaður Barcelona, var ekki ánægður með spiltímann sem hann fékk undir stjórn Hansi Flick á síðustu leiktíð.

Hann var mjög opinn með sínar skoðanir í viðtali við spænska miðilinn Sport. Þessi 22 ára gamli miðjumaður kom aðeins við sögu í 14 leikjum í öllum keppnum.

„Ég tel að ég hefði getað spilað fleiri mínútur, ég átti það skilið. Við vorum að keppa á mörgum vígstöðum og það var erfitt að komast að en hann var ekki sanngjarn við mig, ég tjáði honum það," sagði Torre.

„Ég var ekki að spila illa þegar ég fékk tækifæri. Þetta er val þjálfarans, það voru vissulega engin meiðsli svo það er erfitt fyrir hann að velja. Ég virði þessar ákvarðanir en ég skildi þær ekki oft á tíðum."
Athugasemdir
banner