Raphael Varane, varnarmaður Manchester United, er tæpur fyrir stórleikinn gegn erkifjendunum í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Um er að ræða einn stærsta leik tímabilsins eins og alltaf þegar þessi tvö lið mætast.
Um er að ræða einn stærsta leik tímabilsins eins og alltaf þegar þessi tvö lið mætast.
Varane hefur verið eins og klettur í vörn Man Utd á þessari leiktíð en núna er óttast að hann verði ekki með í dag.
Daily Mail fjallar um það að Varane muni gangast undir skoðanir stuttu fyrir leik og í kjölfarið verði tekin ákvörðun með það hvort hann spili eða ekki.
Harry Maguire og Victor Lindelöf eru báðir tilbúnir að spila við hlið Lisandro Martinez í hjarta varnarinnar hjá United ef Varane getur ekki spilað sökum meiðsla.
Athugasemdir