Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   mán 05. júlí 2021 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tveir leikmenn á förum til að fjármagna samning fyrir Messi
Mynd: Getty Images
Samningur Lionel Messi við Barcelona rann út um mánaðarmótin en forseti Barcelona er að vinna hörðum höndum að semja upp á nýtt við leikmanninn.

Messi er um þessar mundir með Argentínu á Copa America sem er komið í undan úrslit keppninnar. Messi er bæði markahæstur og stöðsendingahæstur á mótinu.

Talið er að hann muni ekki klára samningaviðræður fyrr en mótinu lýkur.

Talið er að Barcelona ætli að rifta samninga Samuel Umtiti og Miralem Pjanic við félagið. Umtiti er sagður ósáttur með þessa ákvörðun og vill vera áfram hjá félaginu.

Pjanic sem á þrjú ár eftir af samningi sínum er sagður opinn fyrir því að samningi hans yrði rift.
Athugasemdir
banner
banner