FH tilkynnti rétt í þessu að sænski miðvörðurinn Tobias Carlsson væri búinn að gera tveggja ára samning við félagið.
Hann er þrítugur og kemur frá sænska félaginu Sirius þar sem hann spilaði í þrjú tímabil. Alls á hann að baki 59 leiki í sænsku úrvalsdeildinni.
Hann hefur spilað allan sinn feril í Svíþjóð. Hann er uppalinn hjá Grebbestads, fór svo til Varbergs, næst Häcken og hefur verið hjá Sirius frá 2023.
Hann lék ellefu leiki tímabilið 2023, þrjá leiki 2024 þar sem meiðsli settu strik í reikninginn, og níu leiki á síðasta tímabili.

„Tobias er leikmaður sem við teljum að muni smellpassa inn í okkar hóp. Hann er með reynslu úr efstu deild í Svíþjóð, öruggur á boltanum, aggresívur og með leiðtogahæfileika. Hann veit til hvers er ætlast af honum hérna hjá okkur og er meira en tilbúinn í að taka að sér stórt hlutverk hérna í Kaplakrika," segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, um nýja leikmanninn.
Komnir
Jökull Andrésson frá Aftureldingu
Kári Kristjánsson frá Þrótti R.
Adolf Daði Birgisson frá Stjörnunni
Tobias Carlsson frá Svíþjóð
Aron Jónsson frá Aftureldingu
Kristján Snær Frostason frá HK
Arnór Borg Guðjohnsen frá Vestra (var á láni)
Gils Gíslason frá ÍR (var á láni)
Axel Marcel Czernik frá Breiðabliki
Farnir
Sigurður Bjartur Hallsson til Spánar
Björn Daníel Sverrisson hættur og tekinn við Sindra
Böðvar Böðvarsson í ÍA
Ahmad Faqa til AIK (var á láni)
Bragi Karl Bjarkason í Njarðvík
Einar Karl Ingvarsson
Mathias Rosenörn
Dagur Örn Fjeldsted í Breiðablik (var á láni)
Samningslausir
Dagur Traustason
Athugasemdir