Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Real Sociedad á Spáni, er hægt og rólega að finna sitt gamla form eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðustu mánuði, en hann skoraði sigurmark liðsins og kom því í undanúrslit spænska konungsbikarsins í gærkvöldi.
Framherjinn byrjaði tímabilið vel með Sociedad en varð fyrir meiðslum sem hafa héldu honum frá velli í nokkra mánuði.
Hann sneri aftur á völlinn í byrjun ársins og verið að fá mínútur í síðustu leikjum.
Orri skoraði sitt fyrsta mark á árinu er hann kom inn af bekknum gegn Alaves í gær og tryggði Sociedad sigurinn með snyrtilegri afgreiðslu.
Pellegrino Matarazzo, þjálfari Sociedad, hrósaði Orra og segist viss um að hann verði mikilvægur fyrir félagið í framtíðinni.
„Það var ofboðslega mikilvægt fyrir hann að skora. Honum leið vel í leiknum og var síðan valinn maður leiksins í klefanum og við auðvitað fögnuðum með honum."
„Ef hann heldur áfram að fá fleiri mínútur, sem hann mun fá með tímanum, heldur hann áfram að vaxa og spila betur. Hann mun verða mikilvægur leikmaður fyrir Real Sociedad," sagði Matarazzo við spænska miðla.
Athugasemdir





