Arsenal 1 - 0 Chelsea
1-0 Kai Havertz ('90 )
1-0 Kai Havertz ('90 )
Chelsea þurfti á sigri að halda á Emirates í kvöld þegar liðið mætti Arsenal í seinini leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins þar sem liðið tapaði fyrri leiknum 3-2 á Stamford Bridge.
Hvorugt liðið sýndi mikla takta í fyrri hálfleik og var staðan markalaus þegar flautað var til hálfleiks.
Gabriel fékk dauðafæri til að fara langt með þetta fyrir Arsenal seint í leiknum þegar hann átti skalla að marki en Marc Cucurella gerði virkilega vel og skallaði boltann frá.
Chelsea menn reyndu hvað þeir gátu að koma boltanum í netið undir lokin og jafna metin í einvíginu en það gekk ekki upp. Fyrrum Chelsea maðurinn Kai Havertz gulltryggði Arsenal sætið í úrslitunum þegar haann skoraði eftir skyndisókn í blálokin.
Liðið mætir annað hvort Man City eða Newcastle í úrslitunum á Wembley en Man City er með 2-0 forystu eftir fyrri leikinn á St. James' Park.
Athugasemdir



