Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 08:20
Kári Snorrason
Sjáðu það helsta úr spænska: Mbappé tryggði sigurinn á tíundu mínútu uppbótartíma
Mynd: EPA
Real Madrid vann hádramatískan sigur á Rayo Vallecano í LaLiga um helgina. Vinícius Júnior skoraði fyrra mark Real Madrid en Jorge de Frutos jafnaði metin fyrir Rayo Vallecano snemma í síðari hálfleik.

Pathé Ciss, leikmaður Rayo Vallecano, lét reka sig á velli á 80. mínútu og voru herjuðu Real Madrid á undirmannaða Vallecano menn. Sigurmarkið kom svo frá Kylian Mbappé sem skoraði úr vítaspyrnu á tíundu mínútu uppbótartíma.

Í blálokin fékk varnarmaðurinn Pep Chavarría sitt annað gula spjald og þar með rautt og enduðu Vallecano menn níu inni á vellinum.

Barcelona vann sterkan 3 1 útisigur á Elche þar sem Lamine Yamal og Ferran Torres skoruðu í fyrri hálfleik og Marcus Rashford innsiglaði sigurinn í þeim síðari.

Þetta og margt annað í markapakka Livey frá Spáni sem hægt er að nálgast í spilaranum hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner