Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Jói Harðar áfram hjá Start - Semur út 2028
Jói Harðar verður áfram hjá Start í Noregi
Jói Harðar verður áfram hjá Start í Noregi
Mynd: Start
Jóhannes Harðarson verður áfram aðstoðarþjálfari norska félagsins Start sem mun spila í A-deildinni á komandi leiktíð, en hann framlengdi við félagið út 2028.

Skagamaðurinn kom Start upp í efstu deild í þriðja sinn á ferlinum undir lok síðasta árs.

Hann gekk í raðir félagsins sem leikmaður árið 2004 og var hluti af liðinu sem hafnaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar ári síðar. Árið 2008 yfirgaf hann Start og fór að spila með Flöy.

Jóhannes starfaði hjá Flöy áður en hann hélt til Vestmannaeyja þar sem hann þjálfaði liðið í um hálft tímabil áður en hann þurfti að hætta.

Frá 2017 til 2019 var hann gerður að aðstoðarþjálfara Start áður en hann tók við sem aðalþjálfari, en var látinn fara árið 2021. Jóhannes starfaði þá hjá norska fótboltasambandinu en þar sá hann um þróun leikmanna fyrir yngri landsliðin áður en kallið kom aftur frá Start.

Í desember 2024 var hann fenginn inn sem aðstoðarmaður Azar Karadas og ári síðar komst liðið aftur upp í efstu deild sem var þá í þriðja sinn sem Jóhannes fer með liðinu upp um deild.

Start er afar ánægt með hans framlag og hefur nú framlengt samning hans út 2028.

„Ég er hæst ánægður með að framlengja samninginn og líður mjög vel með Azar, öllu þjálfarateyminu og leikmönnunum. Á sama tíma finnst mér margt jákvætt vera að gerast í kringum klúbbinn og hlakka ég mikið til að halda vegferð minni áfram hjá félaginu," sagði Jóhannes á heimasíðu Start.
Athugasemdir
banner
banner