Liam Rosenior, stjóri Chelsea, fékk mikla gagnrýni fyrir upplegg liðsins gegn Arsenal í undanúrslitum enska deildabikarsins á Emirates í kvöld.
Chelsea var marki undir fyrir leikinn eftir 3-2 tap á Stamford Bridge í fyrri leiknum. En Rosenior ákvað að spila sterkan varnarleik til að byrja með.
Chelsea var marki undir fyrir leikinn eftir 3-2 tap á Stamford Bridge í fyrri leiknum. En Rosenior ákvað að spila sterkan varnarleik til að byrja með.
„Ég hef verið sérfræðingur, eftir á að hyggja er auðvelt að vera sérfræðingur," sagði Rosenior.
„Ef ég spila sóknarleik, pressa mjög hátt og við fáum á okkur tvö mörk snemma hefðu allir sagt 'Hvað er hann að gera?' Ef maður tapar er maður gagnrýndur, ef þú vinnur ertu snillingur."
Cole Palmer og Estevao komu inn á 60. mínútu og þá reyndi Chelsea að sækja meira.
„Það var planið, þið sáuð það. Mér fannst sálfræðilegi þátturinn í leiknum líka mjög mikilvægur og ég fann fyrir því á vellinum líka. Eftir 60 mínútur kom ég með Cole og Estevao inn á og leikurinn opnaðist og við fengum tækifæri bæði inní og við teiginn," sagði Rosenior.
„Mér fannst við geta snúið einvíginu við, ég hafði það á tilfinningunni. Við náðum því ekki sem við vildum en þetta snýst ekki um upplegg heldur úrslit."
Athugasemdir


