Martin O´Neill, stjóri Celtic í Skotlandi, segist mjög áhugasamur um að fá enska miðjumanninn Alex Oxlade-Chamberlain á frjálsri sölu, en viðurkennir að það gæti verið snúið.
Oxlade Chamberlain hefur verið án félags síðasta hálfa árið eftir að hann rifti samningi sínum við Besiktas í Tyrklandi.
Síðan þá hefur hann æft hjá Arsenal og haldið sér í góðu standi, en Arsenal er opið fyrir því að gera stuttan samning við miðjumanninn og þá er Celtic alvarlega að skoða það að sækja hann.
O´Neill vill fá Oxlade-Chamberlain en segir að það verði samkeppni um hann.
„Já, algerlega. Hann hefur æft með Arsenal í einhvern tíma síðan hann fór frá Tyrklandi. Ég hef rætt við hann en ég er viss um að hann sé með mörg járn í eldinum og eitthvað sem er töluvert nær Lundúnum. Ég verð samt að viðurkenna að hann er mjög viðkunnanlegur."
„Ég væri mjög áhugasamur um að fá hann, en ég er aðallega hissa að félög nær Lundúnum hafi ekki tekið hann nú þegar og svo sagði hann mér að hann væri búinn að æfa með Arsenal í dágóðan tíma."
„Ef við tölum um formið hans þá er hann ekki alveg í leikformi en það er allt í lagi. Við munum skoða þetta og hlusta, en hann er samt með fullt af möguleikum."
„Hann var spenntur fyrir því sem við höfðum að segja. Hann þekkir félagið og er stórvinur Joe Hart sem hefur líka rætt við hann, en það var ekki fyrir okkar hönd heldur bara spjall á milli vina."
„Þetta er eitthvað sem við erum áhugasamir um, en ef það verður ekki af því þá er það bara þannig," sagði O´Neill.
Athugasemdir


