Leiðtogar gyðingasamfélagsins á stórborgarsvæði Manchester hafa ráðlagt Pep Guardiola, stjóra Manchester City, að einbeita sér að fótboltanum í stað þess að tjá sig um alþjóðamál.
Gyðingasamfélagið sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið af ummælum Guardiola þar sem hann sagðist vilja nota stöðu sína með því að tjá sig um þann sársauka og samkennd sem hann finnur þegar hann hugsar um öll börnin sem eru að deyja í stríðum um heim allan.
Guardiola sendi fórnarlömbunum í Palestínu einnig stuðning sinn á góðgerðarsamkomu í Barcelona í síðustu viku, en honum hefur nú verið ráðlagt að fara varlega þegar hann ræðir um þessi viðkvæmu mál.
„Við höfum ítrekað óskað eftir því að áhrifamiklir einstaklingar sýni gaumgæfni varðandi orðin sem þeir nota í ljósi allra þeirra árása sem gyðingar hafa mátt þola um allan heim."
„Pep Guardiola er fótboltaþjálfari og þó svo hugleiðingar hans um mannúð séu gerðar af góðum vilja þá ætti hann frekar að einbeita sér að fótbolta."
„Hann er ítrekað að bregðast Manchester City með því að tjá sig um alþjóðamál," segir í yfirlýsingu gyðingasamfélagsins.
Athugasemdir




