Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 22:35
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu sigurmark Orra í bikarnum
Orri gerði sigurmark Sociedad
Orri gerði sigurmark Sociedad
Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson er byrjaður að skora á ný eftir að hafa verið frá síðustu mánuði en hann gerði sigurmark Real Sociedad gegn Deportivo Alaves í bikarnum í kvöld.

Framherjinn var mikið frá vegna meiðsla fyrri hluta tímabilsins, en er nú meiðslalaus og kominn á kreik.

Hann kom inn af bekknum á móti Alaves er staðan var 2-1 fyrir heimamenn. Sociedad jafnaði og þá skoraði Orri nokkrum mínútum síðar með laglegri afgreiðslu.

Þetta var annað mark hans á tímabilinu og það fyrsta í bikarnum, sem reyndist svona ótrúlega mikilvægt, en það kom Sociedad áfram í undanúrslit bikarsins.

Hægt er að sjá það hér fyrir neðan.

Deportivo Alavés 2-[3] Real Sociedad - Orri Óskarsson 80'
byu/4gjdtokurwa insoccer

Athugasemdir
banner
banner
banner