Skoska liðið Rangers er ósigrað í síðustu átta leikjum og er nú þremur stigum á eftir liði Hearts sem hefur óvænt verið að leiða skosku úrvalsdeildina.
Rangers átti ekki í vandræðum með Kilmarnock í gær og vann 5-1 sigur. Það gerði Rangers enn auðveldara fyrir að leikurinn var aðeins þriggja mínútna gamall þegar Dom Thompson, leikmaður Kilmarnock, fékk rautt spjald fyrir að ræna upplögðu marktækifæri.
Fimm mismunandi markaskorarar skoruðu mörk Rangers; James Tavernier, Bojan Miovski, Andreas Skov Olsen, Oliver Antman og Mikey Moore.

Rangers nýtti sér það að Hearts tapaði í vikunni fyrir St Mirren, þar sem Tómas Bent Magnússon kom inn af bekknum hjá Hearts.
Hearts er með 54 stig, Rangers 51 stig og Celtic 48 stig. Tvö efstu liðin hafa leikið 25 leiki en Celtic á leik til góða þar sem leik liðsins í gær var frestað. Vegna mikilla rigninga var heimavöllur Aberdeen metinn óleikhæfur.
Athugasemdir