Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
   fim 05. febrúar 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Liverpool með 18 stigum minna en í fyrra
Mynd: EPA
Nú er þriðjungur eftir af tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal er langlíklegast til að vinna titilinn en Manchester City og Aston Villa eru að elta.

Dougie Critchley, íþróttafréttamaður Sky Sports, skoðaði stöðuna í samanburði við stöðuna fyrir ári síðan. Það er mikill stigamunur á nokkrum liðum.

Þar á meðal er Liverpool sem er með 18 stigum færra en á sama tímapunkti í fyrra, eftir 24 umferðir. Liverpool var fyrir ári á toppnum með sjö stiga forystu og endaði uppi með titilinn.

Liverpool var duglegt á leikmannamarkaðnum síðasta sumar og sótti Hugo Ekitike, Florian Wirtz og Alexander Isak. Púslin hafa hinsvegar ekki fallið eins vel og vonast var eftir.

Það er þó ekki Liverpool sem er fjærst sínum stigafjölda frá því í fyrra. Það er hlutskipti Nottingham Forest sem var í þriðja sæti fyrir ári síðan en er núna í harðri fallbaráttu.

Mesta bætingin er hjá Manchester United sem er með tólf stigum meira en fyrir ári síðan.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner
banner