Eftir öruggan og þægilegan sigur gegn Newcastle í undanúrslitum deildabikarsins tryggði Manchester City sér farseðilinn á Wembley þar sem liðið leikur gegn Arsenal í úrslitaleik 22. mars.
Athyglisvert er að varnarmaðurinn Marc Guehi, sem City keypti frá Crystal Palace í janúarglugganum, má ekki taka þátt í úrslitaleiknum en Antoine Semenyo, sem kom frá Bournemouth í glugganum, er hinsvegar löglegur.
Semenyo kom til City 9. janúar og spilaði svo og skoraði í fyrri undanúrslitaleiknum gegn Newcastle fjórum dögum síðar.
Guehi kom 19. janúar og samkvæmt reglum deildabikarsins má hann ekki taka þátt í keppninni ef hann kemur til félagsins eftir að undanúrslitin eru farin af stað.
Pep Guardiola, stjóri City, kallar eftir því að þessi regla verði endurskoðuð.

„Það er erfitt að skilja það að Marc megi ekki spila úrslitaleikinn. Félagið gerði stóra fjárfestingu með því að fá hann. Hann er okkar leikmaður og ég skil ekki af hverju hann getur ekki spilað í úrslitaleiknum," segir Guardiola.
„Vonandi skrifum við bréf og vonandi verður þetta endurskoðað. Ég skil ekki þessa reglu. Vonandi er hægt að breyta henni."
Athugasemdir