Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 16:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kári útskýrir ráðninguna: Þurftum þjálfara með Pro gráðuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur tilkynnti í dag ráðningu á Brynjari Birni Gunnarssyni í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Hann var tilkynntur sem meðþjálfari Sölva Geirs Ottesen fyrir komandi leiki í Sambandsdeildinni.

Fótbolti.net ræddi við yfirmann fótboltamála hjá Víkingi, Kára Árnason, í kjölfar tíðindanna. Í tilkynningu Víkings er talað um Sambandsdeildina, en hvað með deildina? Verður Brynjar Björn bara í Evrópuleikjunum?

„Fyrst og fremst erum við að ráða Brynjar Björn út af því hversu öflugur þjálfari hann er, og hann getur nýst okkur mjög vel í deildinni líka. Það er skýr krafa af hálfu UEFA að í Evrópukeppnum þurfa lið að vera með aðalþjálfara sem eru með gilda UEFA Pro þjálfaragráðu. Það er bara staðan," segir Kári.

Er Sölvi að vinna í þeirri gráðu?

„Sölvi er með UEFA A gráðu í dag og getur vonandi klárað Pro gráðuna einhvern tímann á næsta ári. Hann er á leið í Pro gráðuna, en við fengum ekki undanþágu frá UEFA. Við fórum þá í að fá Brynjar inn."

Hefðuð þið ekki gert neitt, hefðuð þið þá ekki mátt taka þátt í keppninni?

„Það er fyrir einhverja aðra að svara því. Við viljum bara uppfylla þau skilyrði sem við getum í þeim keppnum sem við tökum þátt í," segir Kári.

Brynjar Björn, sem er fyrrum landsliðs- og atvinnumaður, tekur til starfa hjá Víkingi eftir landsleikjahléið.
Athugasemdir
banner
banner