Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
   mið 07. maí 2014 14:38
Magnús Már Einarsson
Freyr: Náum vonandi í sögulegan sigur
Freyr fer yfir málin á æfingu landsliðsins í dag.
Freyr fer yfir málin á æfingu landsliðsins í dag.
Mynd: KSÍ - Hilmar Þór
,,Það eru allar líkamlega og andlega klárar. Það er virkilega gott að hér séu 20 leikmenn sem eru tilbúnir að spila leikinn á morgun," segir Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari kvenna en liðið mætir Sviss í undankeppni HM á morgun.

Sviss er á toppi riðilsins með 16 stig en Ísland er með níu stig í öðru sætinu. Ísland á hins vegar tvo leiki inni og getur því komist í fína stöðu með sigri á morgun.

,,Þetta er kjörið tækifæri til að taka stjórnina í riðlinum. Leikurinn er ennþá mikilvægari fyrir vikið. Það væri gaman að koma hingað og taka þrjú stig á móti öflugu liði."

Íslenska liðið hefur unnið fimm leiki í röð og getur sett met með því að sigra sjötta leikinn á morgun.

,,Við erum á þeim stað sem ég vildi vera með liðið á núna. Ég er virkilega ánægður með það sem við höfum gert upp á síðkastið og það er framar vonum. Vonandi heldur þetta áfram og við náum í sögulegan sigur á morgun á móti Sviss."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner