Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
banner
   mán 07. maí 2018 22:08
Elvar Geir Magnússon
Emil Andri: Bjóst alls ekki við því að spila í dag
Emil Andri Auðunsson.
Emil Andri Auðunsson.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Tveir strákar fæddir árið 2000 spiluðu sinn fyrsta Íslandsmótsleik fyrir Víking í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Val. Logi Tómasson byrjaði leikinn og svo kom markvörðurinn Emil Andri Auðunsson inn á 42. mínútu eftir að Aris Vaporakis fékk höfuðhögg.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 -  0 Valur

„Ég bjóst alls ekki við því að spila í dag. Ég hef oft verið á bekknum en aldrei komið inn á," segir Emil.

„Það var ótrúlega skemmtilegt að spila þennan leik. Við hefðum þurft að skora en það bara kom ekki mark en við héldum hreinu og það er geggjað."

Emil kom flottur inn og sýndi öryggi milli stanganna, það var ekki að sjá á honum að hann væri að spila sinn fyrsta leik.

„Það var eitthvað stress í manni en það fór alveg."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpin hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner