Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   sun 07. júní 2026 17:36
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Vestri vann yfirburðasigur á KÞ - Raniyah með þrennu
Kvenaboltinn
Vestri fagnar sigrinum á KÞ
Vestri fagnar sigrinum á KÞ
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Vestri 10 - 1 KÞ
0-1 Þóra Guðrún Einarsdóttir Briem ('18 )
1-1 Freyja Rún Atladóttir ('20 )
2-1 Raniyah Ajanai Marie Burton ('29 )
3-1 Freyja Rún Atladóttir ('42 )
4-1 Raniyah Ajanai Marie Burton ('44 )
5-1 Rachel Angelina Bastone ('45 )
6-1 Raniyah Ajanai Marie Burton ('54 )
7-1 Rachel Angelina Bastone ('59 )
8-1 Jayla Finley Ponce ('72 )
9-1 Jayla Finley Ponce ('86 )
10-1 Briana Carrington Myers ('89 )

Vestri vann stórsigur á KÞ, 10-1, í 5. umferð 2. deildar kvenna á Kerecis-vellinum á Ísafirði í dag.

Raniyah Ajanai Marie Burton skoraði þrennu fyrir Vestra, sem lenti þó óvænt undir eftir átján mínútna leik.

Þóra Guðrún Einarsdóttir Briem kom KÞ yfir, en Vestri svaraði með fimm mörkum áður en flautað var til hálfleiks.

Heimakonur bættu við fimm mörkum í síðari hálfleik. Raniyah fullkomnaði þrennu sína á 54. mínútu og Racel Angelina Bastone skoraði sitt annað mark fimm mínútum síðar.

Jayla Finley Ponce skoraði tvö mörk á fjórtán mínútna kafla áður en Briana Carrington Myers rak síðasta naglann í kistu KÞ.

Þetta var þriðji sigur Vestra í deildinni. Liðið er með 11 stig í 4. sæti, en KÞ er með 4 stig í 9. sæti.
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fjölnir 5 4 1 0 26 - 3 +23 13
2.    Afturelding 4 4 0 0 25 - 2 +23 12
3.    Einherji 5 4 0 1 26 - 5 +21 12
4.    Vestri 5 3 2 0 24 - 4 +20 11
5.    Augnablik 5 3 0 2 9 - 16 -7 9
6.    Fylkir 4 2 1 1 12 - 6 +6 7
7.    ÍR 5 1 1 3 7 - 11 -4 4
8.    Dalvík/Reynir 4 1 1 2 8 - 13 -5 4
9.    KÞ 5 1 1 3 7 - 19 -12 4
10.    Álftanes 5 0 2 3 3 - 16 -13 2
11.    Smári 5 0 1 4 2 - 39 -37 1
12.    KFR 4 0 0 4 2 - 17 -15 0
Slapp
banner
banner